Tónver Tónlistarskóla Kópavogs (TTK)
HexRec
Sláið hér til þess
að sjá myndir úr tónveri
Sláið hér til
þess að fá upplýsingar um ART2000 fyrstu Alþjóðlegu
Raf-
og Tölvutónlistarhátíð
sem haldin hefur verið á Íslandi.
English Home Page
Tónlistarskóli Kópavogs hefur komið á fót fullkomnu tölvutónlistarhljóðveri
þar er mjög fullkomin aðstaða til að fást við tónlist og hljóð með tölvum.
Þar er meðal annars:
- Aðstaða til nótnaritunar og útprentunar.
- Tölvustýrðir (midi) hljóðgjafar og hljóðbreytitæki þar sem hægt er að
stjórna tónlist og hljóman hennar á mjög nákvæman, en auðveldan hátt.
- Stafræn hljóðupptaka á segulband eða í tölvu.
- Stafræn hljóðmyndun og hljóðvinnsla í tölvu sem nýtist hvort heldur
til að búa til hljóð frá grunni eða meðhöndla áður tilbúin hljóð á
margvíslegan hátt. Þetta er oft kallað "hljóðhönnun".
- Stafræn eftirvinnsla á hljóði, t.d. klipping og "hreinsun" á gömlum
upptökum.
- Tónlistarforritun, þar sem hægt er að láta tölvu stýra ýmsum ferlum
við samningu og meðhöndlun tónlistar, auk þess að greina tónlist
sem þegar hefur verið samin.
Frekari upplýsingar um tækjabúnað hljóðversins er að finna
hér.
Kennsla á vegum tónversins er kennd á tveimur brautum:
- Tölvutónlist sem valgrein.
- Tölvutónlist sem aðalgrein.
Ætlunin er að úr þessu
verði til ný tegund íslenskra tónlistarmanna - tölvutónlistarmenn, með
tölvu sem aðal-"hljóðfæri". Til að fyrirbyggja misskilning skal tekið fram
að orðið er notað hér í tæknilegri merkingu - ekki verður gert upp á milli
tónlistarstefna, heldur verður nemendum gert kleyft eftir fremsta megni að
fara sínar eigin leiðir í þeim efnum.
Frekari upplýsingar um kennslu á vegum tónversins er að finna
hér.
Forstöðumenn T.T.K. eru Hilmar Þórðarson
og Ríkharður H. Friðriksson,
"tölvutónlistarmenn".
Til er dálítið af námsefni í tölvutónlist á veraldarvefnum. Nokkur dæmi um það má sjá
hér.
Þeim sem vilja fræðast meira um hljóðverið og starfsemi þess, er velkomið
að senda fyrirspurnir beint til TTK@ismennt.is.
Til að ná tali af lifandi manneskjum er heppilegra að hafa samband við annan
hvorn neðantaldra:
Ríkharður H. Friðriksson, tölvupóstur: rhf@lhi.is.
Hilmar Þórðarson, tölvupóstur: hilthor@lhi.is.
Upplýsingar um innritun og önnur praktísk mál fást hjá:
Tónlistarskóla Kópavogs
Pósthólf 149
Hamraborg 6
202 Kópavogur
Sími: 570 0410
Fax: 570 0413
Tölvupóstur: tonlistarskoli@tonlistarskoli.is
Web-Counter telst til að þú
sért gestur númer
síðan 1. ágúst
1996.
Uppfært 27. október 2003
|
TTK@ismennt.is